Skip to content Beint í efni
Landgrunnsskráin The Icelandic Shelf Inventory
← Back to the overview← Til baka í yfirlitið
§ 01

Scope

Afmörkun

This is not a seabed-mapping projectÞetta er ekki kortlagning

The Icelandic Coast Guard surveys and publishes the nautical charts for navigational safety. The Marine and Freshwater Research Institute surveys for fisheries and habitat and contributes to EMODnet. Those institutions perform essential statutory roles. This project neither duplicates nor competes with them.

The product is a traceable, systematically quality-graded inventory of what others have already measured, and where those measurements fall short — built from existing open data, without ship time and at negligible cost, where every result carries a confidence assessment and a written reason for why it was accepted or rejected.

The rejection record is the product, not the list. A verified negative result is a complete deliverable. Target 5 produced no discovery — and proof that every open dataset covering it had been examined and none was sufficient. In a conventional prospecting project that would count as failure. Here it is the deliverable.

Landhelgisgæsla Íslands annast sjómælingar og gefur út sjókort til að tryggja öryggi siglinga. Hafrannsóknastofnun stundar rannsóknir vegna fiskveiða og búsvæða og leggur gögn til EMODnet. Þetta eru lögbundin hlutverk þeirra og verkefnið keppir ekki við þær.

Afurðin er rekjanleg og kerfisbundið gæðaflokkuð skrá yfir það sem aðrir hafa þegar mælt og hvar mælingarnar eru ófullnægjandi — unnin úr fyrirliggjandi opnum gögnum, án skipatíma og með hverfandi kostnaði. Sérhverri niðurstöðu fylgir áreiðanleikamat og skriflegur rökstuðningur fyrir því hvers vegna hún var samþykkt eða henni hafnað.

Höfnunarskráin er afurðin, ekki listinn. Staðfest neikvæð niðurstaða er fullburða skilagagn. Við markmið 5 fannst ekkert — en jafnframt fékkst sönnun þess að öll opin gagnasöfn sem náðu yfir það höfðu verið könnuð og ekkert þeirra nægði. Við auðlindaleit teldist það misheppnuð niðurstaða. Hér er það niðurstaðan.

§ 02

Method

Aðferð

Five steps, in order, applied identically to every square

Fimm skref, í fastri röð, notuð með sama hætti á hvern ferning

Screening that rejects nothing produces false positives, and each false positive costs the buyer a ship day. The workflow is designed around systematic rejection.

Skimun sem hafnar engu skilar fölskum jákvæðum niðurstöðum og hver slík niðurstaða kostar kaupandann skipdag. Kerfið er byggt í kringum útilokun.

  1. Provenance and licence, per file

    Every input file is recorded with its source, download date, DOI or cruise identifier and licence status, so the legal position of every output layer is known before it is used.

    Uppruni og leyfi, fyrir hverja skrá

    Fyrir hverja inntaksskrá er skráður uppruni, niðurhalsdagur, DOI-auðkenni eða auðkenni leiðangurs og staða notkunarleyfis, svo að lagaleg staða hvers úttakslags liggi fyrir áður en það er notað.

  2. Coverage measured against track lines, never search results

    Archives return cruises whose bounding box overlaps a square, not cruises that measured it. Distance is measured to the actual navigation line before anything is downloaded. Two cruises reported as covering both targets turned out to be Pacific Ocean data.

    Þekja mæld út frá siglingaferlum, aldrei leitarniðurstöðum

    Gagnasöfn skila leiðöngrum þar sem afmörkunarreiturinn skarast við tiltekinn ferning, en ekki endilega leiðöngrum sem mældu hann. Fjarlægð að raunverulegum siglingaferli er mæld áður en nokkur gögn eru sótt. Tveir leiðangrar sem voru skráðir með þekju yfir bæði markmiðin reyndust geyma gögn frá Kyrrahafinu.

  3. Cross-instrument normalisation

    Backscatter collected with a 1994 EM12 and a 2018 EM712 is normalised to a common angular reference before comparison, rather than merely co-located.

    Samræming milli mælitækja

    Bakdreifing frá EM12-tæki frá 1994 og EM712-tæki frá 2018 er gerð samanburðarhæf, ekki aðeins lögð á sama stað, með því að leiðrétta hvort gagnasafn að sameiginlegu hornviðmiði.

  4. Geometry-based and slope-aware rejection

    Every measurement carries its incidence angle; anomalies outside the reliable inner swath are flagged automatically rather than assessed by visual inspection alone. Residual-height methods overestimate relief on steep ground, so the slope constraint is a rule, not a manual check.

    Höfnun byggð á rúmfræði og halla

    Hverri mælingu fylgir ágeislunarhorn hennar. Frávik utan áreiðanlegs innra mælibeltis eru merkt sjálfkrafa í stað þess að vera metin með auganu. Aðferðir sem byggjast á afgangshæð ofmeta hæðarmun í miklum halla og því er hallaskilyrðið regla, ekki handvirk athugun.

  5. Two reference areas, mandatory

    Every positive result is compared against at least two reference areas matched for depth, distance from the spreading axis and survey instrument, processed through the same workflow, but with no known activity. One reference is not enough: at Target 5 a single reference produced a significant excess — 1.67× as many strong anomalies, two-proportion z-test, z = 2.41, p = 0.016 — that a second reference erased completely. Variability between squares was larger than the signal.

    Tveir viðmiðunarreitir, án undantekninga

    Sérhver jákvæð niðurstaða er borin saman við að minnsta kosti tvo viðmiðunarreita sem samsvara henni að dýpi, fjarlægð frá gosás, mælitæki og forskrift, en þar sem engin þekkt virkni er. Eitt viðmið nægir ekki: Við markmið 5 sýndi eitt viðmið marktækt umframhlutfall — 1,67 sinnum fleiri sterk frávik, hlutfallapróf (z-próf), z = 2,41, p = 0,016 — sem hvarf með öllu þegar öðru viðmiði var bætt við. Breytileiki milli ferninga var meiri en merkið.

§ 03

Evidence

Sönnunargögn

What the method removed

Það sem aðferðin útilokaði

The case for a screening engine is not what it found. It is what it took away — including its own strongest results.

Rökin fyrir skimunarkerfi felast ekki í því sem það fann. Þau felast í því sem það útilokaði — þar á meðal eigin sterkustu niðurstöður.

Date#ClaimWhat it actually was
5 Sep 202601A mound 79 m high and 60 m wideA 288 m regional slope, against 8,898 raw soundings
5 Sep 20260228 patches of strong acoustic return at Area B79% of them beyond 38° incidence — edge-of-swath artefacts
5 Sep 202603Cruises NA138 / NA143 "cover both targets"Pacific Ocean data
6 Sep 202604"7% coverage" on cruise CD87Measured sounding density, not ensonification
7 Sep 202605Target 5 — the project's strongest resultInside the range of two matched reference areas
7 Sep 202606Target 3 — 59 candidates at ≥ +6 dBBelow the background of two matched reference areas
8 Sep 202607Target 3 — a 2.03 dB sidescan excessSpread between source files inside one box exceeded the difference between boxes
10 Sep 202608Satellite data can close the gapSeawater is opaque to the electromagnetic waves that would have to reach shelf depths. A satellite measures the height of the sea surface and infers depth from the gravity field; it can never return backscatter. GEBCO_2026 uses SWOT gravity: direct measurement across the shelf rose from 67.5 to 68.6 per cent, but the gain came from new multibeam (TID 11, +16,844 km²), not from SWOT — no predicted cell moved to measured
Dags.Nr.FullyrðingHvað þetta reyndist vera
5.9.202601Hóll, 79 m hár og 60 m breiðurHluti af 288 m svæðisbundnum halla, samkvæmt 8.898 hráum dýptarmælingum
5.9.20260228 blettir með sterku hljóðendurvarpi á svæði B79% þeirra voru utan 38° ágeislunarhorns — mælibeltisjaðaráhrif
5.9.202603Leiðangrarnir NA138/NA143 „ná yfir bæði markmiðin"Gögn frá Kyrrahafinu
6.9.202604„7% þekja" í leiðangri CD87Mældur þéttleiki dýptarmælinga, ekki hljóðgeislunarþekja
7.9.202605Markmið 5 — sterkasta niðurstaða verkefnisinsInnan bils tveggja samsvaraðra viðmiðunarreita
7.9.202606Markmið 3 — 59 möguleg frávik við ≥ +6 dBUndir bakgrunni tveggja samsvaraðra viðmiðunarreita
8.9.202607Markmið 3 — 2,03 dB umframgildi hliðarsónarsDreifing milli frumskráa innan eins reits var meiri en munurinn milli reita
10.9.202608Gervitunglagögn geta lokað bilinuSjór hleypir ekki í gegn þeim rafsegulbylgjum sem þyrftu að ná niður á landgrunnsdýpi. Gervitungl mælir hæð sjávarborðs og ályktar dýpið af þyngdarsviðinu; það getur aldrei skilað bakdreifingu. GEBCO_2026 notar SWOT-þyngdargögn: bein mæling yfir landgrunnið fór úr 67,5% í 68,6%, en aukningin kom úr nýjum fjölgeisla (TID 11, +16.844 km²), ekki frá SWOT — enginn spáður reitur færðist yfir í mældan

Rejections 06 and 07 are the same target, taken apart in full — why it was selected, what had been measured, what the analysis first suggested, and why that apparent result was rejected: a worked example.

Hafnanir 06 og 07 varða sama markmiðið, sem hér er rakið til hlítar — hvað beindi athyglinni að því, hvað var mælt, hvað kom í ljós og hvað útilokaði niðurstöðuna: fullunnið dæmi.

§ 04

Worked example

Fullunnið dæmi

Four targets on the Reykjanes Ridge, exhausted in open data

Fjögur markmið á Reykjaneshrygg, fullkönnuð í opnum gögnum

The first test of the method asked a deliberately narrow question: where on the Icelandic part of the Reykjanes Ridge is there evidence of active or extinct hydrothermal systems that nobody has followed up? Four seismically persistent targets south of 61°N were screened against every open multibeam dataset covering them.

Fyrsta prófun aðferðarinnar fól í sér vísvitandi þrönga spurningu: Hvar á íslenska hluta Reykjaneshryggjar eru vísbendingar um virk eða útdauð jarðhitakerfi sem enginn hefur fylgt eftir? Fjögur markmið sunnan 61°N, þar sem skjálftavirkni hafði verið viðvarandi, voru könnuð með hliðsjón af öllum opnum fjölgeislagögnum sem náðu yfir þau.

TargetPositionBest instrumentReliable sampleReferencesResult
259.374°N 30.371°WEM712 · MSM75, 20182,756—Empty. Also vanished from the ISC catalogue
359.827°N 29.919°WEM710 · AR30-01, 2018433twoBelow background — half as many strong anomalies as ordinary ridge floor
460.975°N 28.050°WEM710 · AR30-02, 2018855twoEmpty, inside the reference range
560.675°N 28.950°WEM12 · CD87, 19941,275twoInside the reference range
MarkmiðStaðsetningBesta mælitækiÁreiðanlegt úrtakViðmiðNiðurstaða
259,374°N 30,371°VEM712 · MSM75, 20182.756—Ekkert. Hvarf einnig úr ISC-skránni
359,827°N 29,919°VEM710 · AR30-01, 2018433tvöUndir bakgrunni — helmingi færri sterk frávik en á venjulegum hryggjarbotni
460,975°N 28,050°VEM710 · AR30-02, 2018855tvöEkkert, innan viðmiðunarbilsins
560,675°N 28,950°VEM12 · CD87, 19941.275tvöInnan viðmiðunarbilsins
Target 3 (n = 433) Markmið 3 (n = 433) Range spanned by two reference areas (n = 546, n = 596) Bil tveggja viðmiðunarreita (n = 546, n = 596) 0% 10% 20% 30% 40% Share of mounds exceeding the backscatter threshold Hlutfall hóla yfir bakdreifingarþröskuldi ≥ +6 dB 7,5–7,9% 3,9% ≥ +4 dB 16,8–18,1% 10,6% ≥ +2 dB 32,2–35,1% 23,8%

Target 3 was the project's last positive result: 59 candidate mounds at ≥ +6 dB. When the target data were reprocessed through the same workflow as the reference areas, the target fell outside their range on every measure — and below them. Median backscatter anomaly: −0.595 dB at the target against +0.472 to +0.505 dB at the references. Reference 1 is an almost exact match on the two properties that could otherwise explain the difference. The mounds' median depth is 1,162 m against 1,173 m at the target, and the box is 8.8 km off-axis against 8.3 km.

Markmið 3 var síðasta jákvæða niðurstaða verkefnisins: 59 mögulegir hólar við ≥ +6 dB. Þegar gögnin voru keyrð aftur í gegnum sama vinnsluferli og viðmiðunarreitirnir féll markmiðið utan bils þeirra á alla mælikvarða — og undir þeim. Miðgildi bakdreifingarfráviks var −0,595 dB við markmiðið en +0,472 til +0,505 dB við viðmiðin. Viðmið 1 er nánast nákvæm samsvörun í þeim tveimur eiginleikum sem annars gætu skýrt muninn. Miðgildisdýpi hólanna er 1.162 m á móti 1.173 m við markmiðið, og reiturinn er 8,8 km frá gosás á móti 8,3 km.

What the exhausted search establishes

Backscatter cannot separate bare basalt from sulphide. That was known from the outset and is now demonstrated in practice at four sites. The remaining step is not more analysis of the same data but a different kind of measurement — near-bottom self-potential and magnetics, which distinguish sulphide from basalt where sound cannot. Those measurements do not exist in open data for the Reykjanes Ridge.

That is a result worth seeking research funding to pursue. It is stronger than a list of untested candidates, because it states precisely which instruments the next survey would need to carry.

Það sem fullkönnuð leitin sýnir

Bakdreifing getur ekki greint bert basalt frá súlfíði. Það var vitað frá upphafi og hefur nú verið sýnt í framkvæmd á fjórum stöðum. Næsta skref er ekki frekari greining sömu gagna heldur annars konar mæling — mæling á sjálfspennu og segulsviði nærri botni, sem greinir súlfíð frá basalti þar sem hljóð getur það ekki. Slíkar mælingar eru ekki til í opnum gögnum um Reykjaneshrygg.

Þetta er niðurstaða sem vert er að sækja um styrk til að fylgja eftir. Hún er sterkari en listi yfir óprófuð möguleg markmið, því hún tilgreinir nákvæmlega hvaða búnað næsta könnun þarf að bera.

§ 05

Record of changes

Breytingaskrá

What changed

Hvað breyttist

Every change to a published figure or term on this site is recorded here, with its date. The page that was corrected is not otherwise marked.

Hver breyting á birtri tölu eða orði á vefnum er skráð hér, með dagsetningu. Síðan sem var leiðrétt er ekki merkt að öðru leyti.

DateChange
3 Sep 2026First published.
10 Sep 2026Figures corrected after external review. The seabed Iceland holds rights over had been given as 1.4 million km²; with the disputed Hatton–Rockall area left out it is 1.1 million km² (Marine Regions, extended continental shelf polygons, retrieved 10 September 2026). Two Icelandic terms replaced: „gæðavottuð" (quality-certified) became „gæðaflokkuð" (quality-graded), since no certification process exists and the grading rules are what is documented; „öryggismat" became „áreiðanleikamat" (reliability assessment).
11 Sep 2026The proposed area MRGID 64726 — 6,086 km² in the Norwegian Sea, filed with Marine Regions as a claim outside Article 76 — removed from the total: 1,114,833 → 1,108,747 km². A proposal is not a right. Named operator removed from the applications figure in § 03; the planned cable is described without a company name.
12 Sep 2026Overview page: three-dimensional image of the seabed added to § 02; layer status table added to § 03. This page: rejection 08 and a date column added to the rejection record. Sharing image for links. Icelandic address, ?lang=is. Accessibility: skip links, one h1 per page, a main landmark. New page /syni/: a sample deliverable run on a synthetic 200 km test section, linked from the applications table in § 03 of the overview.
Dags.Breyting
3.9.2026Fyrst birt.
10.9.2026Tölur leiðréttar eftir ytri yfirlestur. Hafsbotn sem Ísland fer með réttindi yfir hafði verið gefinn 1,4 milljónir km²; þegar umdeilda Hatton–Rockall-svæðið er tekið út er hann 1,1 milljón km² (Marine Regions, fjölhyrningar landgrunns utan 200 mílna, sóttir 10. september 2026). Tveimur orðum skipt út: „gæðavottuð" varð „gæðaflokkuð", því ekkert vottunarferli er til og flokkunarreglurnar eru það sem er skjalfest; „öryggismat" varð „áreiðanleikamat".
11.9.2026Tillögusvæðið MRGID 64726 — 6.086 km² í Noregshafi, skráð hjá Marine Regions sem tillaga utan 76. gr. hafréttarsamningsins — tekið út úr heildinni: 1.114.833 → 1.108.747 km². Tillaga er ekki réttindi. Nafn rekstraraðila tekið út úr notkunarmyndinni í § 03; strenglögninni er lýst án fyrirtækisheitis.
12.9.2026Yfirlitssíðan: þrívíddarmynd af hafsbotninum bætt við § 02; stöðutafla laga bætt við § 03. Þessi síða: höfnun nr. 8 og dagsetningardálkur bætt við höfnunarskrána. Deilingarmynd fyrir tengla. Íslensk slóð, ?lang=is. Aðgengi: hopptenglar, ein h1 á hverri síðu, main-kennileiti. Ný síða /syni/: sýnisafurð á tilbúnum 200 km prófunarkafla, tengd úr notkunartöflu § 03 á yfirlitssíðunni.