Skip to content Beint í efni
Landgrunnsskráin The Icelandic Shelf Inventory
← Back to the overview← Til baka í yfirlitið
§ 01

A worked example

Fullunnið dæmi

One target, followed from start to finishEitt markmið, rakið frá upphafi til enda

The overview says the method rejects its own strongest results. This page shows one case in full: why the site was selected, what had been measured there, what the analysis first suggested, and why that apparent result was rejected.

Í yfirlitinu segir að aðferðin hafni eigin sterkustu niðurstöðum. Á þessari síðu er eitt tilvik rakið til hlítar: hvað beindi athyglinni að staðnum, hvað var mælt þar, hvað kom í ljós og hvað útilokaði niðurstöðuna.

The site lies on the Reykjanes Ridge at 59.827°N, 29.919°W, 8.3 km west of the spreading axis, where the median depth of the box is 1,188 metres. It was selected from the international earthquake catalogue, not from a hunch: 44 recorded earthquakes within 3.7 km, and activity in ten separate years. Persistent off-axis microseismicity is one of the few remotely detectable indicators that hydrothermal circulation may still be occurring beneath the seabed.

Off-axis is the interesting part. Systems on the axis were surveyed in the 1990s because they vent into the water column and can be detected from a ship. Extinct off-axis systems give off nothing to detect. They are the largest gap in what is known about the ridge.

Staðurinn er á 59,827°N, 29,919°V á Reykjaneshrygg, 8,3 km vestan gosássins, þar sem miðgildisdýpi reitsins er 1.188 metrar. Hann var valinn út frá alþjóðlegri jarðskjálftaskrá, ekki hugboði: 44 skráðir jarðskjálftar innan 3,7 km og virkni á tíu aðskildum árum. Viðvarandi smáskjálftar utan gosáss eru ein fárra vísbendinga frá yfirborði um að jarðhitakerfi kunni að vera í hringrás undir botninum.

Fjarlægðin frá gosásnum er áhugaverða atriðið. Kerfi á ásnum voru könnuð á tíunda áratugnum vegna þess að úr þeim streymir út í vatnssúluna og þau má greina frá skipi. Útdauð kerfi utan ássins gefa ekkert frá sér sem hægt er að greina. Þau eru stærsta gloppan í þekkingu okkar á hryggnum.

§ 02

The survey

Mælingin

Existing survey data already covered the site

Einhver hafði þegar mælt staðinn

No ship was chartered. The research vessel Neil Armstrong crossed this stretch of ridge in 2018 on cruise AR30-01 with a Kongsberg EM710 multibeam echosounder running, and the raw data has been sitting in an open archive ever since. 652,980 individual soundings fall inside the box reaching 15 km in every direction around the target.

Ekkert skip var tekið á leigu. Rannsóknarskipið Neil Armstrong fór yfir þennan hluta hryggjarins árið 2018 í leiðangri AR30-01 með Kongsberg EM710-fjölgeisladýptarmæli í gangi og hráu gögnin hafa legið í opnu gagnasafni æ síðan. Innan reitsins sem nær 15 km í allar áttir frá markmiðinu eru 652.980 stakar dýptarmælingar.

Þrjú spjöld: dýptarkort, hólakort og hliðarsónar yfir markmiði 3.

Target 3 in three measurements from the same cruise. a) depth on a 25-metre grid — the swath is the strip the ship actually covered; everything grey is unmeasured. b) the same area with the terrain trend removed, leaving 1,889 individual mounds. c) sidescan sonar gridded at 15 metres, which records how hard the seabed reflects sound rather than how deep it is. The red circle is the target.

Markmið 3 í þremur mælingum úr sama leiðangri. a) Dýpi í 25 metra reitaneti — mælibeltið er ræman sem skipið mældi í reynd; allt sem er grátt er ómælt. b) Sama svæði eftir að landslagsleitnin hefur verið fjarlægð, þannig að eftir standa 1.889 stakir hólar. c) Hliðarsónarmæling í 15 metra reitaneti, sem skráir hversu sterkt hafsbotninn endurvarpar hljóði fremur en dýpi hans. Rauði hringurinn sýnir markmiðið.

AR30-01 · Kongsberg EM710 · via MGDS · click for full resolution

AR30-01 · Kongsberg EM710 · frá MGDS · smellið til að sjá fulla upplausn

§ 03

What came up

Hvað kom í ljós

Fifty-nine candidates, and they looked convincing

Fimmtíu og níu möguleg frávik — og þau virtust sannfærandi

Sulphide deposits can produce stronger acoustic backscatter than bare basalt. Screening the backscatter for mounds that stand out from their surroundings by 6 decibels or more returned 59 candidates, all off-axis, all at a depth where copper-rich systems are possible. On its own that might appear to justify targeted near-seabed investigation.

It was also, at that point, the only positive finding the project had. That is exactly the condition under which a screening engine is most likely to fool the person operating it.

Súlfíðútfellingar geta endurvarpað hljóði sterkar en bert basalt. Við skimun bakdreifingar eftir hólum sem skáru sig úr umhverfinu um 6 desíbel eða meira fundust 59 möguleg frávik, öll utan gosáss og öll á dýpi þar sem koparrík kerfi gætu verið. Ein og sér gæti sú niðurstaða virst réttlæta markvissa könnun nærri botni.

Á þeim tímapunkti var þetta jafnframt eina jákvæða niðurstaða verkefnisins. Það eru einmitt þær aðstæður sem gera líklegast að skimunarkerfi blekki þann sem notar það.

§ 04

The reference areas

Viðmiðin

Compared with ordinary seabed, it ran the other way

Í samanburði við venjulegan hafsbotn snerist niðurstaðan við

Counts mean nothing without something to count against. Two reference areas were chosen from the same cruise, the same instrument and the same processing, at the same depth and the same distance off-axis, with no recorded earthquakes. One of them matches the target almost exactly: median box depth 1,245 metres against 1,188, and 8.8 km off-axis against 8.3. That rules out the obvious alternative explanation — young basalt near the axis is naturally brighter than older, sediment-covered basalt further out.

Talning segir ekkert án samanburðar. Tveir viðmiðunarreitir voru valdir úr sama leiðangri, með sama mælitæki og sömu vinnslu, á sama dýpi og í sömu fjarlægð frá gosás, en án skráðra jarðskjálfta. Annar þeirra samsvarar markmiðinu nánast nákvæmlega: miðgildisdýpi reits 1.245 metrar á móti 1.188, og 8,8 km frá gosás á móti 8,3. Þar með er augljósasta skýringin útilokuð — ungt basalt nærri ásnum er frá náttúrunnar hendi bjartara en eldra basalt lengra frá sem setlög hafa lagst yfir.

Reliable sample, capped at 30° incidence. Target 3: 433 mounds, median −0.595 dB, 3.9% at or above +6 dB. Reference 1: 546 mounds, +0.505 dB, 7.5%. Reference 2: 596 mounds, +0.472 dB, 7.9%.

The target sits outside the range of the two controls on every measure — below them. It has roughly half as many strong backscatter anomalies as ordinary ridge seabed at the same depth. The 59 candidates were not an excess. The background is twice as rich in them as the target is.

Áreiðanlegt úrtak, takmarkað við 30° ágeislunarhorn. Markmið 3: 433 hólar, miðgildi −0,595 dB, 3,9% við eða yfir +6 dB. Viðmið 1: 546 hólar, +0,505 dB, 7,5%. Viðmið 2: 596 hólar, +0,472 dB, 7,9%.

Markmiðið er utan bils viðmiðanna tveggja á alla mælikvarða — undir þeim. Þar eru um það bil helmingi færri sterk bakdreifingarfrávik en á venjulegum hryggjarbotni á sama dýpi. Frávikin 59 voru ekki umfram bakgrunn. Þau eru tvöfalt algengari í bakgrunninum en við markmiðið.

§ 05

The reversal

Viðsnúningurinn

A second measurement said the opposite

Önnur mæling sýndi hið gagnstæða

The first test capped the data at 30° incidence, because measurements taken at a steep sideways angle are unreliable. But the target lies near the outer edge of the survey swath while both reference areas lie almost directly beneath the ship. The angular cap had therefore confounded differences between sites with differences in swath position.

Sidescan sonar is built for oblique angles and resolves about 9 metres where the beam data resolves 24. The same cruise had recorded it all along, in a part of the file format the earlier processing had read with the wrong setting and found empty. Extracted properly, it produced 5.98 million pixels across the target and both reference areas — and it put the target above both of them, the opposite sign to the first result.

Í fyrstu prófuninni voru gögnin takmörkuð við 30° ágeislunarhorn, því mælingar við skarpt hliðarhorn eru óáreiðanlegar. Markmiðið er hins vegar úti á væng mælibeltisins en bæði viðmiðin nánast beint undir skipinu. Takmörkunin hafði því blandað saman mun milli staða og mun á stöðu í mælibeltinu.

Hliðarsónar er hannaður fyrir ská horn og hefur um 9 metra upplausn þar sem geislagögnin hafa 24 metra upplausn. Sami leiðangur hafði skráð þau gögn alla leiðina, í þeim hluta gagnasniðsins sem fyrri vinnsla hafði lesið með rangri stillingu og talið auðan. Þegar gögnin voru lesin rétt fengust 5,98 milljónir myndpunkta yfir markmiðið og bæði viðmiðin — og samkvæmt þeim var markmiðið yfir báðum viðmiðunum, öfugt við fyrri niðurstöðu.

Two measurements from the same ship, pointing in opposite directions. The question is which result reflects genuine seabed properties and which is dominated by instrument and calibration effects.

Tvær mælingar frá sama skipi vísa í gagnstæðar áttir. Spurningin er hvor þeirra mæli hafsbotninn og hvor mælitækið.

The same three places, measured two ways. / Sömu þrír staðir, mældir með tvennum hætti. -4 -2 0 +2 +4 59,83°N 59,58°N 59,28°N a) Absolute residual — sidescan Algilt frávik — hliðarsónar 59,83°N 59,58°N 59,28°N b) Local difference — beam backscatter Staðbundinn munur — bakdreifing geisla dB One point per source file. Same scale in both panels. Hver punktur táknar eina frumskrá. Sami kvarði á báðum myndhlutum.

The same three places, measured two ways. Each point is one source file — one continuous stretch of survey, with its own calibration. a) absolute reflectivity after a single shared angle correction: the spread between files inside one box is larger than the difference between boxes, and all three boxes overlap. b) the local difference between a mound and the ring of seabed around it, from the beam data. Subtracting the surroundings cancels the calibration, and the three places separate cleanly — the target below zero, both reference areas above, no overlap.

Sömu þrír staðir, mældir með tvennum hætti. Hver punktur er ein frumskrá — einn samfelldur mælikafli með eigin kvörðun. a) Algilt endurvarp eftir eina sameiginlega hornleiðréttingu: dreifingin milli skráa innan eins reits er meiri en munurinn milli reita og reitirnir þrír skarast allir. b) Staðbundinn munur milli hóls og hringsins af hafsbotni umhverfis hann, reiknaður út frá geislagögnunum. Þegar umhverfið er dregið frá falla kvörðunaráhrifin út og staðirnir þrír skiljast skýrt að — markmiðið undir núlli, bæði viðmiðin yfir núlli, án skörunar.

59.83°N — target59,83°N — markmið 59.58°N and 59.28°N — controls59,58°N og 59,28°N — viðmið

The appropriate statistical unit is the independently calibrated source file, not each pixel extracted from it. Grid cells from the same file are one measurement in many copies. Counted as cells, the sidescan excess had 64,113 samples and a p-value below 0.001. Counted as files, it had five, and p = 0.082 — Welch's unequal-variance t-test on the per-file medians.

Applied to the earlier negative result, the same test holds it: all four of the target's files are negative, all eight reference files positive, no overlap, p = 0.009.

Einingin í tölfræðiprófi er það sem lýtur sameiginlegri kvörðun, ekki það sem talið er. Reitir úr sömu skrá eru ein mæling í mörgum eintökum. Þegar reitirnir voru taldir hafði umframgildi hliðarsónarsins 64.113 mælingar að baki og p-gildi undir 0,001. Þegar skrárnar voru taldar voru þær fimm og p = 0,082 — Welch-próf með ójöfnum dreifnum á miðgildum hverrar skrár.

Þegar sama próf er lagt á fyrri neikvæðu niðurstöðuna stenst hún: Allar fjórar skrár markmiðsins eru neikvæðar, allar átta viðmiðunarskrárnar jákvæðar, engin skörun, p = 0,009.

§ 06

The result

Niðurstaðan

Nothing found, and that is the deliverable

Ekkert fannst — og það er skilagagnið

Target 3 is a verified negative in the sense that matters here: nothing in the available open measurements distinguishes it from ordinary ridge seabed. Both available measurement types have now been applied to it and tested against matched controls, and the open multibeam archives are exhausted for this location. The 59 candidates are on record together with the reason they were discarded.

That is the product. A buyer commissioning a survey does not need a list of places that might be interesting — they need to know which places have been ruled out and on what evidence, because every unresolved candidate is a ship day. This example cost no ship time at all.

Markmið 3 er staðfest neikvæð niðurstaða í þeim skilningi sem hér skiptir máli: ekkert í fyrirliggjandi opnum mælingum aðgreinir það frá venjulegum hryggjarbotni. Báðum tiltækum mælingagerðum hefur nú verið beitt og niðurstöðurnar prófaðar gegn samsvöruðum viðmiðum. Öll opin fjölgeislagagnasöfn fyrir þennan stað hafa verið fullkönnuð. Mögulegu frávikin 59 eru skráð ásamt ástæðu þess að þeim var hafnað.

Þetta er afurðin. Kaupandi sem pantar könnun þarf ekki lista yfir staði sem gætu verið áhugaverðir — hann þarf að vita hvaða staðir hafa verið útilokaðir og á grundvelli hvaða gagna, því sérhvert óútkljáð markmið jafngildir skipdegi. Þetta dæmi kostaði engan skipatíma.

What would settle the question is a different kind of measurement altogether — self-potential and near-bottom magnetics, which separate sulphide from basalt where sound cannot. No such data exists in the open archives for the Reykjanes Ridge. That gap, established rather than assumed, is a result in its own right.

Það sem gæti skorið úr um málið er allt önnur gerð mælinga — mæling á sjálfspennu og segulsviði nærri botni, sem greinir súlfíð frá basalti þar sem hljóð getur það ekki. Engin slík gögn eru til í opnum gagnasöfnum um Reykjaneshrygg. Sú gloppa, sem hér er staðfest fremur en gengið út frá, er sjálfstæð niðurstaða.